Kári er héraðsdómslögmaður með framhaldsmenntun á sviði alþjóðaviðskiptaréttar frá Erasmus University í Rotterdam. Kári hefur áralanga starfsreynslu á fjármálamarkaði.
Menntun og gráður
2004
Erasmus University Rotterdam – Meistaranám (LL.M) í alþjóðaviðskiptarétti
2001
Lögmannafélag Íslands – öðlast réttindi sem héraðsdómslögmaður
1999
Háskóli Íslands – Lagadeild (Cand. Juris)
Starfsreynsla
2021
KK Legal - Eigandi
2014 - 2020
Lögmaður á fyrirtækjasviði Landsbankans
Helstu verkefni:
Skjalagerð og ráðgjöf vegna fjármögnunar fyrirtækja og verkefna.
Samskipti við opinbera aðila.
Verkstjórn ytri ráðgjafa.m.a. vegna erlendra útlána.
2011 - 2014
Lögmaður á sviði endurskipulagningar eigna hjá Landsbankanum
Helstu verkefni:
Skjalagerð og ráðgjöf vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja og uppgjörs skulda.
Skjalagerð og ráðgjöf vegna yfirtöku bankans á fasteignum og fyrirtækjum.
Bein þátttaka í samningaviðræðum við fyrirtæki og aðra hagaðila.
Hagsmunagæsla vegna þrotabúa, greiðslustöðvana og nauðasamninga.
2010 - 2011
Lögmaður (Senior Manager) á skatta- og lögfræðisviði Deloitte
Helstu verkefni:
Vinna við samruna, skiptingu og slit félaga.
Framkvæmd lögfræðilegra áreiðanleikakannanna.
Ráðgjöf varðandi almenna eftirfylgni við lög og reglur á sviði félagaréttar.
Samningaviðræður og skjalagerð.
Almennt utanumhald félaga
2010 - 2014
Lagadeild Háskóla Íslands
Skipaður prófdómari í alþjóðlegum viðskiptarétti við lagadeild HÍ.
2006 - 2010
Lögmaður á lögfræði – og fyrirtækjasviðum Sparisjóðabanka Íslands
Helstu verkefni:
Skjalagerð og ráðgjöf vegna erlendra fasteignaþróunarverkefna.
Yfirumsjón með lögfræðivinnu vegna erlendra útlána.
Skjalagerð og ráðgjöf í tengslum við kaup/sölu SPB á erlendum fyrirtækjum.
Skjalagerð og ráðgjöf fyrir fyrirtækjaráðgjöf bankans.
2004 - 2006
Löglærður fulltrúi hjá Landwell (nú BBA Legal )
Helstu verkefni:
Skjalagerð og ráðgjöf við kaup, sölu og fjármögnun fyrirtækja.
Áreiðanleikakannanir
2001 - 2003
Lögfræðingur hjá embætti Lögreglustjórans í Reykjavík
Helstu verkefni:
Aðstoða lögreglu við rannsókn auðgunarbrota, eignaspjalla o.fl.
Samning ákæra og málsmeðferð og flutningur sakamála fyrir dómi.
Málsmeðferð og flutningur rannsóknarkrafna fyrir dómi
2000 - 2001
Tollstjórinn í Reykjavík – verkefnastjóri gjaldþrotamála
Helstu verkefni:
Hagsmunagæsla vegna þrotabúa, s.s. mæting á gjaldþrotaþing, málsmeðferð þegar gerðarþolar mótmæla kröfu um gjaldþrotaskipti, samskipti við skiptastjóra, o.fl.
Mætingar hjá sýslumönnum vegna aðfarargerða og nauðungarsala.