Félagaréttur
Hjá KK Legal er sérþekking á öllum sviðum hefðbundins félagaréttar. Sérþekking KK Legal á öðrum sviðum lögfræðinnar, t.d. á sviði fjármögnunar, samkeppnisréttar og á sviði yfirtaka og samruna tryggir skilvirk vinnubrögð. Stofan hefur byggt upp tengsl við lögmannsstofur á Norðurlöndunum, í Bretlandi, Eystrasaltsríkjunum og Bandaríkjunum. Þær geta veitt viðskiptavinum KK Legal ráðgjöf um rétt í viðkomandi landi í samvinnu við KK Legal.
Sem dæmi um þá þjónustu sem veitt er á þessu sviði má einkum nefna:
- Ráðgjöf um val á fjármögnun.
- Ráðgjöf varðandi stofnun og umgjörð hlutafélaga.
- Ráðgjöf vegna breytinga á stjórnskipulagi og samþykktum félaga, undirbúningur og stjórnun hluthafa-og aðalfunda.
- Hagsmunagæsla fyrir félög og/eða einstaka hluthafa.
- Framkvæmd lögfræðilegra áreiðanleikakannana á fyrirtækjum.
- Kaupréttaráætlanir og einstakir kaupréttarsamningar.
- Ráðgjöf vegna stjórnarhátta fyrirtækja.
- Ráðgjöf varðandi fylgni við reglur hlutafélagalaga.
- Ráðgjöf vegna yfirtöku félaga.